Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Fram er að koma að Vinstri Grænir og Samfylkingin seldu Hitaveitu Suðurnesja

Tíu mánuðir eru síðan þingflokkur vinstri grænna fól Steingrímur J. Sigfússon, að tryggja innlend yfirráð yfir HS orku. Því hafi komið á óvart að orkufyrirtækið sé nú í höndum kanadísks fyrirtækis en ekki lífeyrissjóða eða hins opinbera.

Kanadíska fyrirtækið Magma Energy keypti á dögunum rúmlega helmingshlut í HS orku í gegnum sænskt dótturfyrirtæki með vilja Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, á þar með nærri hvert einasta hlutabréf í framleiðsluhluta hitaveitu Suðurnesja sem hét. Seljandinn var Geysir Green Energy. Viðskiptin hafa vakið hörð viðbrögð, og verið gagnrýnd harkalega .  Viðskiptin hafa vakið hörð viðbrögð, og verið gagnrýnd harkalega vegna sölu Vinstri grænna og Samfylkingarinnar á Hitaveitu Suðurnesja.


Stofna reikning till styrktar fjölskyldu Ásu.

Ása er mikið slösuð en er á batavegi. Markmið söfnunarinnar er að 
styrkja fjölskylduna vegna tekjutaps.

Ása er mikið slösuð en er á batavegi. Markmið söfnunarinnar er að styrkja fjölskylduna vegna tekjutaps.

Stofnaður hefur verið söfnunarreikningur í Sparisjóði Keflavíkur í Garði til styrktar fjölskyldu Ásu Þorsteinsdóttur sem lenti í hörmulegu bílslysi þann 24. apríl síðastliðinn. Hún liggur mikið slösuð á spítala en er á batavegi.

Tvær vinkonur Ásu létust í slysinu.

Markmið söfnunarinnar er að styrkja fjölskylduna vegna tekjutaps sem þau hafa og munu verða fyrir. Má búast við erfiðum tímum á næstunni hjá sex manna fjölskyldunni og ferðirnar margar á milli Garðs og Reykjavíkur. Í frétt á vef sveitarfélagsins Garðs eru allir hvattir til þess að leggja sitt af mörkum til að auðvelda fjölskyldunni lífið. Númer reikningsins er: 1192-05-410100  kt. 130264-2989.


Auðlindir landsins seldar úr landi.

Aumingjaskapur og aulaháttur  íslenskra stjórnvalda er uppmálað í þessu sorglega aðgæsluleysi um almannahagsmuni. 
 Sala Geysis Green á fimmtíu og tveggja prósenta hlut sínum í HS Orku til Magma Energy, eru sorgleg tíðindi. Auðlindir landsins eru að fara á alþjóðlegt markaðstorg og betra hefði verið að hér á landi væru lög sem vörnuðu því að auðlindir landsins kæmust í eigu erlendra fyrirtækja.

Samningaviðræður á milli Geysis Green Energy og Magma Energy um kaup Magma á  hlut Geysis Green í HS Orku, hafa staðið yfir um nokkurt skeið

Fátt getur komið í veg fyrir að kanadíska fyrirtækið Magma Energy eignist 98 prósenta hluti í HS orku. Þar með yrði þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins komið í eigu erlendra aðila. Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ segir þetta þýða að hagnaður af orkusölunni flytjist úr landi. Bæjarfélagið hafi með einkavæðingu á sínum tíma selt frá sér mjólkurkúna.

Geysir Green Energy er íslenskt orkufyrirtæki sem ætlaði sér stóra hluti í orkuútrásinni en á nú í vök að verjast. Það er nú í eigu Atorku, Íslandsbanka og fleiri. Geyris Green á 52 prósenta hlut í HS orku en reynir nú að hámarka eignir sína með sölu þeirra. Þar bíður við dyrnar kanadíska fyrirtækið Magma Energy, sem í gegnum dótturfélag í Svíþjóð, Magma Energy Sweden, á nú þegar 46 prósenta hlut í HS orku. Fyrirtæki Magma í Svíþjóð var stofnað vegna þess að orkufyrirtæki utan evrópska efnahagssvæðisins meiga ekki eiga í íslenskum orkufyrirtækjum. Magma hefur gert tilboð í hlut Geysis Green og ef þau kaup ganga eftir á Magma Energy 98 prósent í HS orku.

Ef samningarnir ganga eftir verður þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins komið í nær 100 prósent eigu erlendra aðila og yrði það í fyrsta skipti sem íslenskt orkufyrirtæki væri alfarið í erlendri eigu. En þar með eignaðist Magma virkjunina í Svartsengi sem og Reykjanesvirkjun og nýtingarrétt á allri orku sem kann að finnast á Reykjanesi næstu 45 árin að minnsta kosti. Hagnaðarvonin er mikil . Fyrir einkavæðingu var Hitaveita Suðurnesja í eigu sveitarfélaganna á svæðinu. c documents and settings notandi desktop myndir 2009 sad day


Höfundur

Hekla Sól Ásdóttir
Hekla Sól Ásdóttir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 148

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband